Prófíll

  • Nafn: Sigrún Magnúsdóttir
  • Staður: Reykjavík
  • Atvinna: Nemi á Bifröst

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

10. september 2007 klukkan 11:31


Fyrsta skiptið sem öll systkini mín eru saman á einni mynd!!!!


Kristjana Björk stóra systir mín með börnin sín 2, Hauk og Mariu, svo kem ég, Telma litla syss, Maggi stóri bró og svo í endanum Sara Margrét litla syss


Litlu systur mínar, Telma Björk og Sara Margrét

Gaman að þessu

Majo :P

28. ágúst 2007 klukkan 00:00
Ég er alls ekki búin að vera dugleg að blogga hérna.... Þögull sem gröfin

Eeeeen það styttist í Majorkamyndir Ullandi



Þær eru væntanlegar....

En blogg frá ferðinni er bæði á

www.123.is/supergengid

 
og

www.blog.central.is/geltirnir

Myndir

17. júlí 2007 klukkan 09:27


Myndir frá laugardeginum undir myndir 2007






HEHEHE!!!
Jói, ég, Darri og Edda fersk úti í prísundinni!!!

Vogin......

05. júlí 2007 klukkan 23:21


Vog (23.september - 22. október) : Þú þykist vera ljúfur og vingjarnlegur, en ert í raun falskur og eigingjarn, brosir framan í fólk, en lýgur og ferð bakvið aðra. Það tekur þig óratíma að taka ákvarðanir, en þegar það loksins gerist, ertu óhagganlegur, enda of latur til að hugsa málin aftur og of upptekinn af því að smjaðra fyrir öðrum...

Jæja

10. júní 2007 klukkan 21:49
Komin tími á einni stuttri frá skutlunni..

Síðasta vika einkenndist af lestri og ritgerðaskrifum.. stuð!! Fyrri ritgerðinni átti að skila að miðnætti á miðvikudaginn en mín var sooooldið annars hugar og tók alla nóttina í þetta og fór ekki að sofa fyrr en hálf 11 um morguninn og svaf til hálf 6 um daginn... sæll!! þá var ég ekki alveg reddí að fara lesa fyrir næstu þannig maður fékk sér morgunmat/hádegismat/kvöldmat?? hehe og fór svo í ræktina um kvöldið.. vá löng setning. Síðan ákváðum við stelpurnar að beila í bæinn um kvöldið. Ég kom heim og horfði á Borat með Magga bro vááááá hvað ég fokking grenjaði úr hlátri!!! Þessi gaur meira en snillingur!!
Á föstudeginum var svo upp í bókhlöðu að lesa og skrifa ritgerð nr. 2. og náði að skila henni á réttum tíma! Síðan var bara tjill fílingur í fólki að ég hélt en nei nei Edda fór bara á blindafylleríi án þess að tala við kóng eða prest!! Ég var bara í tjillinu, prófaði nýjan tölvuleik man ekki hvað hann heitir einhver kappasktursleikur einhverri hluta vegna tapaði ég alltaf! við vorum alveg fjögur... pottþétt útaf því að ég var eina stelpan haha!!
Ég gafst bara upp á þessum leik og sætti mig við áhorfendasætið hehe!! Sofnaði síðan alltof seint!! Síðan hringdi múttan mín og bað mig um sækja Söru sys í leiðinni heim, fór svo í Kringluna til að kaupa eitthvað smátterí fyrir útskriftina hjá Hildi um kvöldið en endaði á því að eyða fokking rúmlega 20000 kalli í sjálfa mig... reyndar átti ég það alveg skilið Nema hvað ég kaupi rándýrt ilmvatn og þegar ég kem síðan heim þá er ég með fokking vitlaust glas!!!!! vel pirruð sko

Síðan var partýið hjá Hildi um kvöldið og voru þar nokkrir Bifrestingar, Sara, Ásta, Inga Kristín, Maja, Hanna og svo líka einhverjir  Biffarar sem ég hafði aldrei hitt áður og svo vinir Hildar. Þetta var massa hresst partý mjög gaman! Takk fyrir mig Hildur Við fórum síðan í townið droppuðum við á Óliver.. sem mér finnst alltaf jafn leiðinlegur staður, aðeins of dull fyrir minn smekk. Við fengum okkur einn drykk og héldum svo á Sólon Hitti Finnaboga og Heimi Berg á leiðinni ekkert smá langt síðan maður hefur hitt þá!!
Sólon var bara hellun og svo tók maður sporið svona inn á milli.

Eftir Sólon fórum við nokkur í Breiðholtið í eftirparty! Gaman gaman hehe! Hildur varð soldið sybbin og fór að sofa bara.. síðan hvarf einhver annar skuggalega stuttu eftir það Þannig að við vorum bara held ég 3 eftir en síðan beilaði Eddzí og fór heim að taka til !!!
Ég vaknaði síðan aðeins of seint þar sem ég ætlaði mér að fara í Kringluna í dag að skipta ilmvatninu en nei nei... Fór svo bara hjem og fór með Söru að fá okkur borða og sturtaði mig og er núna bara að fara að pakka og svo er það Bibbs í kvöld ein ritgerð to go síðan er ég farin í sumarfrí



Jæja Gonner!!!
~Sigrún~

30. apríl 2007 klukkan 10:45
Þessi undurstórkostlega fallega síða er núna á hold í óákveðinn tíma Saklaus

Bloggið er á www.123.is/supergengid


24. apríl 2007 klukkan 03:38
Jæja pípol nú er sko kominn tími á einni góðri frá dömunni !!!

Helgin er liðin og vorönnin hér á Bifröst gengin í garð Vorum að byrja í dag í fyrstu lotunni okkar sem fjallar um hnattvæðingu og kemur kennarinn alla leið frá Slóveniu hann Dr.Jernej Pikalo. Hann kom mér á óvart ef ég á segja satt því ég bjóst við manni borð við Zizak sem var hér á landi fyrir stuttu, kom bæði fram á Íslandi í dag og var einnig með fyrirlestur hérna upp á Bifröst og örugglega á öðrum stöðum líka. Þeir sem sáu hann vita hvað ég á við þegar ég segi að dr. Pikalo hafi komið manni á óvart því Zizak var frekar torskilinn og erfitt að fylgja eftir öllu sem hann var að segj. Ég hélt að þessi kúrs myndi því reyna meira á ná að skilja hvað maðurinn væri að segja frekar en nokkuð annað. En annað kom á daginn því Pikalo talar flekklausa Oxford ensku og mér fannst ég vera hlusta á hann Friðrik enskukennarann minn úr Verzló back in the dayz...!!

Vetrarönnin hjá mér kláraðist núna á miðvikudaginn síðasta þegar við kláruðum missó! Þvílíkir léttir að klára það enda maaassívt erfitt verkefni en ég lærði helling á því, þannig ef einhver vill fræðast meira um stjórnarfarið og efnahaginn í Serbíu og Slóveníu þá er ég við símann, bara anytime

Þar sem ég fékk þarna 4 daga frí þá var lítið því til fyrirstöðu að kíkja á miðbæ Reykjavíkur og ég brunaði því beint í bæinn til hennar Eddu minnar þar sem hún klára prófin líka og var bærinn bleikur aaaaalla helgina Edda gerði nú greinagóða færslu hérna að neðan um afdrif miðvikudagsins sem já var í grófum dráttum ölvun, ekkert bitastætt sem situr eftir þar en Edda er nú samt búin að kynnast gólfinu á Sólon aðeins betur, hehehe

Á fimmtudeginum var maður eiginlega bara þunnur svaf alveg til rúmlega fimm að mig minnir og kíkti svo á Trúbbakvöld á Sólon og það var mjööög slappt. Þannig við fórum bara snemma heim, og ég heimska ég, fór að horfa á video með bróður mínum, sem er ekkert heimskulegt í sjálfu sér nema hvað að við horfðum The Grudge 2 !!! Orðum það þannig að eftir fyrri myndina gat ég ekki sofið ein í marga daga og seinni myndin er margfalt meira spooky en sú fyrri, alveg great. Hún var samt frekar mikil vonbrigði því ég var ekki alveg skilja plotið strax. Eftir myndina urðum við að horfa á eitthvað léttara svona til að geta sofnað og horfðum við á tvo Scrubs þætti fyrir svefninn sem eru snilldar þættir.

Á föstudeginum vaknaði ég svo hálf 7 um kvöldið!! Illa að vinna upp svefn sko. Ég var mjög lengi að koma mér í gang en ákvað ég að drattast að gera mig til og sótti Eddu og Hildi og fórum við í bæinn. Eddzí mín og Hildur voru alveg nógu ölvaðar fyrir mig og eiginlega allt Súpergengið haha!! Stelpur þið eruð nóttla snilld, hélt að ég yrði ekki eldri þegar lögregluviðreynslan hófst.

"Viljiði handtaka okkur??"

"Hvað þurfum við að gera svo þið handtakið okkur??"

"Hey er ekki ólöglegt að pissa á almannfæri?, ef ég pissa hérna úti muniði þá handtaka mig??"

"Farðu úr hönskunum aðeins?? Úúú enginn hringur"

Stelpur ég elska ykkur!!!

Við tókum sveiflu á Hverfis já af öllum stöðum. Mig grunar að Hverfis sé allur að koma til núna, rísa úr lægðinni. Aldrei að vita að hann verði eins og hérna back in the dayz!! Það var nóttla geðveikur tími!!

Á laugardeginum var svo kveðjupartý heima hjá Oddnýju og hittust þar nokkrir HHS-ingar í bland við vini Oddnýjar. Það var rosa gaman, jólabjórinn minn vakti mikla lukku, hehehehe. Já það var það eina sem var til heima
Kíkt var á Vegamót.. hann var ekki alveg að gera sig þannig ég beilaði á Sólon til Eddu minnar. Helga og Hildur fóru á rölt milli staða bara. Síðan varð Eddzýlús bara lasnalús og þurfti að fara heim Ég hélt bara áfram að tjútta og fór á Hverfis að hitta Gunz og svo aftur á Sólon og hitti Söru, Hildi og Ástu en Sara og Ástu beiluðu á Prikið þannig ég og Hildur vorum bara eftir í ruglinu, haha!! En ég kom mér þó heil heim fyrir rest



Nokkrar svipmyndir frá helginni... þangað til að Edda setur inn allar myndirnar






   






Já ég er sko með athyglisgáfuna í lagi, hahahaha!!!




En já nú er komið nóg í bili!!!

SEGS- hittingur á fimmtudaginn

Súpergengishittingur á laugardaginn (þar næsta)

Allt að gerast, JeHú

~Sigrún~

22. apríl 2007 klukkan 17:31
Valsmenn Íslandsmeistarar !!!Hissa Erfa titilinn eftir 9 ára pásu.. gott með ykkur strákar Glottandi 21. Íslandsmeistaratitillinn í hús :D:D:D

There are many things that I would like to say to you but I don't know how...

20. apríl 2007 klukkan 23:13
...

...Eitt besta lag allra tíma!!


Búið búið búið!!

19. apríl 2007 klukkan 18:55
Þá er maður búinn bæði í prófum og missó!!!!!!!Svalur

Kláraði málsvörnina í gær og það var meira sögukennsla í boði Jóns Ólafs. og Magnúsar Árna hehe en já hún gekk bara vel Ullandi
Þannig núna er maður bara kominn í frí fram á næstu önn... sem byrjar á mánudaginnÖskrandi en þá einmitt verð ég 2.árs nemi Glottandi


Það var dottið í það í gær... en frekar skandalalaust kvöld samt sem áður... svo er það Sjjjólon á trúbbakvöld í kvöld og það verður sko bara kók við hönd... tilhugsunin við áfengi er ekki mjög freistandi hehehe!!



Myndir frá föstudeginum langa... páska-dinner hjá ömmu og afa..



Ég með litla frænda, Vilhjálm Darra, klæðir þetta mig ekki velGlottandi





Við frænkurnarBrosandi

Klukkan

Leit

Innskráningar kubbur